31.01.2012 10:53:57 / Haukur
Eins og of áður er ég staddur á flugvelli á leiðinni heim. Fyrsta stopp London og svo það til Chicago.
Það er búið að vera mikið að gera hérna þessar rétt rúmar tveir vikur sem ég hef verið hérna. Aðeins of mikið. Ekki það að ég vilji að það sé of lítið að gera. Þá fer manni bara að leiðast. En það má stilla þessu í hóf.
Ég hef látið heyra frá mér til réttra aðila að þetta sé bara rugl. Núna vita þeir hvar ég stend.
Áður en ég fer nú að gefast upp þá er best að ræða málin. Þannig að ég verð aftur á leiðinni hingað eftir tvær vikur. Já tvær vikur í frí eftir hverjar tvær unnar vikur. Það er nú helsta ástæðann sem ég vill að þetta gangi upp og svo auðvita væri nú gott eða geta verið með sama samning í 1 til 2 ár.
Þegar kemur að vinnu á þessum flugvelli er hann einn sá óhentugasti sem ég hef unnið á. Alveg örgglega á topp 5 yfir þá verstu. Og eins og flestir vita hafa það verið ansi margir flugvellir í gegnum tíðina.
En þegar kemur að því að ferðast um þennan flugvöll er það andstaða. Frekar einfaldur og þægilegur.
Ég ætlaði mér að hitta skildfólk á meðan ég var hérna þessar tvær vikur en það verður að bíða betri tíma. Ef ég sé ekki fram á það að það gangi upp á þessum tveimur viku endar með því að ég verð auka dag eða tvo til að geta notið mín, ekki ákveðið hvenær það verður. Ég þarf svona aðeins að sjá hvað setur og hvort að þetta gangi upp eða hvort ég verði kominn eitthvað annað í vor.
En ég hef gert mitt besta að vera jákvæður og vill að þetta geti gengið upp.
Það er vesen með netið hérna á þessum sólbjarta þriðjudagsmorgni á flugvellinum í Köben. Þannig að, eins og oft áður, verð ég að bíða með að birta þetta.
Ég vona að þið hafið það sem best á þessum síðasta degi janúar.
»
11.01.2012 22:02:20 / Haukur
Þetta var skrifað þann 3 janúar. Einhverja hluta vegna hef ég ekki sett þetta inn fyrr.
Nú árið er liðið. Ég er auðvita ekki að tala um 2012 heldur það sem kom á undan.
Áramótaheit einhver?
Sjálfur hef ég ekki staðið í því svona flest síðustu ár.
Ég hugsa þetta þannig að það sé alltaf góður tími til að gera breytingar.
Ég hef t.d. verið að gera mitt besta að klóra í bakkann í sambandi við aukakílóin.
Ekki veit ég hvað þau voru mörg um þessi jól en sem stendur en ég stóð mig vel í sambandi við átið, auðvita hefði það geta verið mun betra en ótrúlega vel miðað við að hafa verið á íslandi í fyrsta skiptið um jól frá því 1995.
Það er víst orðið það langt síðan síðast um jól.
Það var gaman að geta skroppið þetta.
Kannski er ekki rétt að segja að skreppa vegna þess að þetta er ansi mikið rugl ferðalag.
En það var þess virði að hitta fjölskildu og örfáa vini.
Það er nú einhvernvegin svo að tíminn er farinn frá manni um leið. Það þarf virklega að halda vel á spöðunum til að allt takist sem ég hef ætlað mér.
Meiri hreifing og minna át var ákveðið áður en við komum. Það tókst vel en kannski fyrir vikið var ekki eitt eins miklum tíma með öllum sem við höfðum ætlað að vera í kringum.
Hvað getur maður sagt. Ég veit að það gera fæstir sér grein fyrir hvernig þetta getur verið nema að standa í þessum sporum.
Okkur þykir auðvita vænt um að fólk vilji sjá okkur og ég hef sagt það oft að við held ég alla að þið þurfið að hafa samband og stundum oftar en einu sinni til að þetta gangi heim og saman.
Það er auðvita auðvelt að miskilja það sem ég er að reina að segja. T.d. að ég telji þetta eftir mér að koma til Íslands eða það að þýða á víxl íslensku og ensku. En það er eriftt að þýða alla daga allan daginn og tekur eiginlega mikið á.
Á meðal annars á þann hátt að ég verð gleymnari en áður, ekki má ég nú við því.
Það voru margir sem gerðu margt fyrir okkur. Mamma og pabbi hýstu okkur og sáu um að við vorum aldrei svöng svo eitthvað sé nefnt.
Baldvin, Guðbjartur og Svavar sáu um að ferja okkur frá einum stað til annars og í sumum tilfellum oftar en einu sinni.
Finni frændi kom líka við sögu.
Svo voru allskonar boð frá ýmsum.
Við viljum koma fram þakklæti til allra þessara aðila og auðvita fleiri sem ég hef ekki nefnt. Sem gerðu eitt og annað fyrir okkur.
Þessa stundina sitjum við um borð á leiðinni til Köben. U.m.b. 5 tímum seinna er ferðinni heitið til London. Þar er mjög stutt stopp, sem ég vona að verði ekki of stutt til að ná næstu vél. Síðan höldum við til New York. Þar verður frekar stuttur svefn og síðan höldum við af stað í loka áfangan þann 4 janúar.
Gleðilegt ár og hafði það sem allra best.
»
25.12.2011 12:35:59 / Haukur
Gleðileg jól.
Það er kominn jóladagur.
Það er nokkuð ljóst að við gerum ekki það sama á jóladag í ár eins og á síðasta ári.
Það er líka allt annað að líta út um gluggann. Það er snjór yfir öllu á Akureyri í dag sem og síðustu daga.
Á síðasta ári á sama tíma sátum við undir Lime tréi og dreyptum á góðum drykk með bróðir hennar Sheilu í Orlando í um 18 stiga hita.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Það er mesta furða hvað við erum hress eftir langt ferðalag.
Það var þannig að við vorum sókt klukkan 9 að morgni þann 22 des til að fara út á flugvöll.
Ferðinni frá Chicago var heitið til Newark, þaðan til London Heathrow.
Við tókum rútuna snemma að morgni þann 23 til Gatwick.
Þaðan var flogið með Iceland Express til Keflavíkur.
Það má geta þess að það var seinkun en bara einn tími.
Baldvin og Sunna tóku á móti okkur. Hann skilaði okkur til Svavars í Reykjavík. Við fórum með Svavari í fluttningarbílnum til Víðgerði þar sem Guðbjartur kom á móti okkur og fórum síðasta sprettinn með honum til Akureyrar.
Við komum til Akureyrar rétt um 23 30. Þá vorum við búinn að ferðast 33 tíma í boði Iceland Express.
Bestu jólakveðjur.
»
20.12.2011 00:01:44 / Haukur
“Sell it to me, sell it to me. I’m so down today.
Need some retail therapy. I’ve got cash in hand to buy happiness.”
(Slater/Tate).
Ég er búinn að sitja á þessu lengi. Þá á svo vel við núna. Auðvita er ég ekki að segja að við séum öll svona fyrir jólin.
Það er óhætt að segja að það hafi mikið gengið á hjá okkur síðustu 4 til 5 vikurnar. Eða svona u.þ.b. frá því að við ákváðum að bóka miða til Íslands með hinu frábæra flugfélgi Iceland Express( Ég mun um ókomin ár njóta þess að nota hvert tækifæri til að drulla yfir þetta félag). Hinsvegar ætla ég ekki að eyða fleiri orðum um það félag að þessu sinni.
Það hefur verið mikið að gerast í atvinnumálunum. Svo sannarlega hef ég þurft að vera á tánnum og eitt milku tíma í þetta, sérstaklega eitt tíma í að tala við fólk sem ég hefði betur verið án þess að tala við. Það var oftar en einu sinni sem ég hélt að ég væri kominn með vinnu.
En allavega þá var haft samband við mig á fimmtdag og spurt hvort ég væri laus og hefði áhuga fyrir því að vinna fyrir þá.
Ótrúlegt en satt ég var búinn að ganga frá öllu því helsta á sólahring og er kominn með vinnu sem byrjar um miðjan janúar og sem meira er ef allt gengur upp þá verður þetta til lengri tíma. Er að tala um ár eða tvö. Það er auðvita alltof snemmt að segja það fyrir víst en lítur vel út.
Ef að það verða engar breytingar þá mun ég vera að vinna í Köben.
Já jólin koma.
Það er ekki laust við að það hafi verið erfitt að finna “balance” hjá mér í þeim málum síðustu árin. Er að tala um vinnu og að geta eitt tíma með þeim nánustu.
Núna vill ég ekki hljóma eins og Scrooge, vegna þess að það er ekkert erfitt fyrir mig að gefa, heldur hefur þetta bara verið erfitt að koma öllu heim og saman.
Að mínu mati eru alltof margir sem hafa áhgyggjur af því að allt sé í sömu skorðum og það fer hreinlega allt á hliðina hjá sumum ef að það er ekki allt eftir uppkriftinni.
Ég vill ekki vera miskilinn vegna þess að ég er ekki á skjóta á neinn.
Að mínu mati er besta gjöfin að geta verið með sem flestum sem maður er tengdur og njóta þess að vera saman. Ekki gjafir né liggja afvelta alla daga vegna þess að maður er búinn að troða svo endarlaust í sig.
Ég ætla að segja þetta gott að sinni.
Nei, ekki alveg. Ég man eftir einu enn.
Þið fáið enginn jólakort frá mér í ár. Það er ekki fyrir það að ég hafi ekki gaman af því að fá kort heldur er það út af öðru.
Ég hafði hugsað mér að senda ykkur kveðju á annan hátt. Við sjáum svo hvað setur.
En allavega ef ég skrifa ekki meira fyrir jól þá segi ég gleðileg jól og njótið vel.
»
15.12.2011 20:04:39 / Haukur
Það sagði Bubbi allavega á sínum tíma. />
Ég flýg yfir fjölin hvít þessa stundina(Þessihluti var skrifaður í gær 14 des). Það er tími til að fara heim eftir velheppnaða ferð til Vancouver/Bellingham/Seattle. />
Talandi um fjöllin þá höfum við þau ekki í kringumokkur í Chicago. Þegar ég ólst upp á Akureyri var sjórinn og fjöllin sjáfsagðurhlutur og maður tók ekkert svona sérstaklega eftir þessu dags daglega.
En þar sem ég hef þetta ekki lengur í kringum migþegar ég er heima kann ég að meta þetta alveg upp á nýtt. Ég tók eftir þvíþarna í Vancouver á laugardaginn að fólk var að flýta sér of mikið til að veraspá í það sem þau sjá daglega. />
Það er svo annað miður sem ég tók eftir þarna þarsem ég gisti og um það svæði sem við fórum að það var mjög mikið rusl á götumog gangstéttum. Þetta er bara sóða pakk. Nei ég segi nú bara svona.
Það er mikið af heimilslausu fólki á þessu svæðiog mér var sagt að það væri mest að heimilislaus fólki í Kanda í Vancouver. Þaðer hlýrra þar heldur en nokkurstaðar annarstaðar í Kanada á veturnar.
Þar sem slíkt fólk er þá er mikið betlað. Það erfrekar þreytandi og ég hef ekki mikinn áhguga að búa þarna.
Ég skil auðvita að þetta fólk þurfi líka að borðaeins og við hin. Því miður er þetta ekki alltaf það sem einhver hefur kosiðsér. Það eru misjafnar ástæður fyrir því að fólk býr á götunni.
Það eru margir sem hafa ekki alist upp við bestuaðstæður og svo auðvita er líka til fólk sem hefur skapað sér þetta. />
Þegar ég settist niður og fékk mér smá kaffi sopaþarna á síðasta sunnudag þá heyrði ég tvo menn á tali um að það væri öllustolið sem væri ekki boltað niður. Þar á meðal annars voru dagblöðunum stoliðsem var skilið fyrir utan verslunina rétt áður en fyrsti maður mætti til vinnu.
Svona í lokinn þá ætla ég bara að minna á að þaðeru bara 9 dagar til jóla. Bara svona að til að stressa ykkur aðeins. Ég veit að þetta er ekki fallega gert af mér.
Lifið heil.
»
11.12.2011 17:40:40 / Haukur
Það er sunnudagsmorgun hjá mér, sem meira er klukkan er tveimur tímum fyrr núna en hún var hjá mér síðasta sunnudag. Hvaða rugl er þetta eiginlega. Jú, það sem ég er að reyna að segja að ég er á vesturströnd Kanada í þessum skrifuðu orðum. Nánar tiltekið i Vancouver. Ég er búinn að fá mér ferskt loft og fann mér stað sem ég settist inn og fékk mér kaffi svona í leiðinni. Unga fólkið sem ég er heima hjá sefur á sitt græna ennþá.
Það er langt síðan ég var kominn í jólafílíng. Ég veit ekki af hverju en kannski er það fyrir það að ég hefi verið heima frá því snemma í nóvember og við höfum gert allt til að njóta þess að geta verið saman í jólaundirbúningnum. Eins og þið vitið hefur það ekki alltaf verið svo sjálfsagt að ég hafi verið heima um jólin og stundum hef ég komið heim rétt fyrir jólin. Á síðasta ári kom ég heim um 18 eða 19 des. Þá var ég búinn að vera mjög upptekinn að vinna og hafði ekki hugsað svo mikið um jólin.Það eru sjálfsagt sumir sem eru nú þegar búnir að fá nóg af jólalögum. Sem betur fer get ég ekki sagt að ég sé búinn að fá nóg af þeim. Ég reyni mitt besta að blanda þessu saman svo að ég fái nú ekki ógeð af þeim svona mörgum dögum fyrir jól.Titillinn á þessari færslu er vel við hæfi. Það er auðvita augljóst að það er kominn desember en sem meira er einn að mínum uppáhalds jóla diskum heitir einmitt það saman, er reyndar líka í miklu uppáhaldi hjá konunni. Það er diskur með Siggu Beinteins. Svo eru líka aðrir úrvals tónlistar menn sem koma við sögu.Svo er annar diskur sem er mjög góður sem við keyptum fyrir um viku síðan og er með Kanada manninum Micheal Bublé. Það gæti verið annar sem mun vera spilaður um mörg ókomin ár, hver veit.
Það hefur verið margt í gangi. Það voru að koma allskonar atvinnutilboð inn í enda nóv. Það leit út fyrir að ég væri að fara til Írlands og hélt satt að segja að það væri að ganga upp. Ég hefði verið þar í um 3 vikur og komið um 19 des heim. En einhverja hluta vegna gekk það ekki upp. Svo var haft samband við mig um hugsanelgan samning í Portúgal og leist vel á það dæmi en það endaði með að ganga ekki upp. En það gæti samt endað með því að ég mundi vinna hjá því fyrirtæki í janúar en mundi sennilega samt ekki vera á þessum stað. Núna er það ljóst að ég vinn ekki meira á þessu ári.
Við vorum á leiðinni til Íslands og ætluðum okkur að vera þar um jól og áramót eftir 15 ára fjarveru á þessum tíma. Já það eru 15 ár síðan við vorum þar síðast á jólunum. En þar sem við bókuðum með Iceland Express þá er allt í lausu lofti þar sem þeir tóku þá ákvörðun að hætta að fljúga til Ísland frá NY. Þeir þykjast vera að reina að finna leið fyrir okkur en það er ekkert að ganga upp. Ég hef eitt tímunum saman í símanum til að tala við þessi F...Ég mun seint eða jafnvel aldrei bóka far með þeim aftur. Þessa stundina segi ég aldrei. Þetta félag hefur meðhönldað allt á rangan veg eftir að þessi ákvörðun var tekin að hætta við þessi flug.Eina ástæðan sem ég vissi að það var hætt við flugið er vegna þess að ég les íslenskar fréttir á netinu. Þeir hafa aldrei haft samband við okkur, ég hef séð um að vera í sambandi við þá.
Ætli þessi færsla sé ekki orðin nógu löng. Ég vona að þið hafið það gott. Væri nú gaman að einhver, eða sem flestir létu nú heyra aðeins frá sé hérna fyrir neðan.
»
22.11.2011 15:35:59 / Haukur
Það er alltaf sama sagan. Ég hef verið að gera mitt besta að koma ansi mörgu í verk. Það er svona að vera mikið í burtu. Það er alltaf eitthvað eins og hjá flestum. Svo er í líka að reyna að hugsa fram á við eða koma öllu því í verk sem ég ætla að gera fyrir jólin. Ég hef verið að fá allskonar atvinnu tilboð. Það síðasta er þokkalegt og hugsa að ég taki það. Það þarf auðvita að stíga þennan vanalega dans. Það gengur á ýmsu áður en allt kemur heim og saman. Það er svo að stæðsti hluti að hugsanlegum samningum detta upp fyrir. Það eru margar ástæður fyrir því. Ef að þetta verður ekki komið í höfn á morgun þá ætla ég að láta þetta fara og ekki vinna meira fyrir jól.
Ég er búinn að leggja svo mikið á mig í þessu og mörgu öðru að ég ætla ekki að standa í meira.
Við erum með plan fyrir jólin sem ég ætla ekki að breyta. Og ef að þetta gengur ekki upp er orðinn of lítill tími til að láta eitthvað ganga upp.
Þá er bara að byrja að leita af einhverju fyrir hið nýja ár 2012.
Þegar ég var heima áður en ég fór í síðustu útilegu var brasað ýmislegt .
Ég var að nýta góða veðrið til að vinna í bílnum og gera sem mest fyrir veturinn.
Já, Það var frábært veðrið í október hér um slóðir. Ég er að tala um dag eftir dag þar sem veðrið var um 25 stiga hiti.
Svo var okkur boðið í grillveislu hjá gömlum vinum sem búa rétt fyrir utan Milwaukee. Það var notið þess að sitja úti fram á kvöld.
Við lögðum leið okkar aftur helgina eftir í þessa átt, eða miðbæ Milwaukee. Þar gistum við eina nótt. Það var aðal tilgangurinn að fara á tónleika.
Við sáum hljómsveitir sem heita: Filter, Chevelle og Bush. Þar sem ég var aðalega fyrir hljómsveit númer tvö á listanum en konan var mest fyrir eitt og þrjú.
Ég verð að segja að Bush kom mér mikið á óvart og voru rosalega góðir.
Fyrir tónleikana þá gengum við um bæinn, aftur var veðrið frábært og fundum okkur skemmtilega staðsettann matsölustað við ánna í miðbænum. Sátum þar úti og nutum þess að borða góðan mat og skoluðum honum niður með góðum drykkjum.
Lifið heil.
»
17.11.2011 19:58:08 / Haukur
Hvað get ég sagt. Það er orðið langt síðan síðast. Ég er alltaf á leiðinni að skrifa, hef ekki gefið mér tíma til þess. Eins og allir vita erum við öll svo upptekinn. Hvernig sem ég því stendur.
Ég er heima hjá mér, búinn með samninginn. Það eru reyndar 2 vikur síðan ég kom heim. Ég þurfti nú endilega að koma heim slappur, vont versnaði. Ótti t.d. tvo mjög slæma daga með höfuðverk sem ekki gekk að hrista af sér þrátt fyrir að ég hafi tekið verkjatöflur.
En nóg um það.
Ég er aðalega að skrifa til að láta heyra rétt frá mér, vonandi kemur miklu meira fljótlega.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
»
15.10.2011 20:26:02 / Haukur
Ég rumskaði og fann matarlykt. Klassísk píanó tónlist hljómaði í heyrnartólinu sem ég var með á hausnum. Það klikkar sjaldnast að sá diskur hefur svo róandi áhrif á mig að ég sofna. Er í svona aðstæðu sem getur verið erfitt að sofna.
Þetta var snemma í morgun.
Það var rétt fyrir eitt í dag sem ég fór svo aftur á fætur. Svo var það líka rétt fyrir kvöldmat sem ég fór enn eina ferðina á fætur á þessum degi. Þetta er nú meiri svefninn.
Það var svo að fyrst í morgun var ég að nálgast Brussels. Svo kom ég í nýja íbúð eftir þetta ferðalag og ákvað að sofa aðeins. Það er svo að ef ég hefði farið á fætur um tvö þá hefði verið búið að loka öllum veitingastöðum þangað til um kvöldmat. Það hefði verið ansi erfitt að borða ekki í...ég veit ekki hvað marga tíma. Svo þurfti ég líka að glápa á leik sem byrjaði klukkan tvö hérna.
Eftir þau gríðarlegu átök ákvað ég að leggja mig. Heima liðið átti skilið að vinna þann þeik sem endaði með jafntefli.
Já, lífið er ekki alltaf sanngjarnt
Það tók þá ekki nema viku að spurja hvort að ég gæti hugsanlega kannski komið aftur. Já, svona eru spurningarnar hjá þeim þessum hérna. Það hefur auðvita allt verið í rugli næstu tvær vikurnar sem fylgdu þessu. Allt frá því að byðja mig að koma þennan dag, nei næsta, nei seinna. Ahh bíddu við kannski aðeins fyrr.
Svo til að bæta gráu ofan á svart þá skiluðu þeir “ÓVART” flugvallarpassanum mínum sem hefur gert það af verkum að ég mátti fylla út pappíra og senda og svo þarf ég að ganga í gegnum smá rugl næstu tvo daga.
Já svona er þetta bara.
Þetta átti nú auðvita ekki að snúast í eitthvað kvörtunar blogg.
Alltaf gott að hafa vinnu. Það gæti alltaf verið verra þó ótrúlegt sé.
Þetta á bara að vera stutt í þetta sinn, eða þangað til 2 nóv.
Ég er kominn í aðra íbúð heldur en ég var í síðast. Það hefur sína kosti og sérstaklega vegna þess að það er styttra að ganga í vinnu.
Og það mætti auðveldlega telja upp aðra hluti sem ég læt eiga sig að sinni.
Svo að lokum ætla ég að segja að það hefur verið smá vesen með bloggið. Það er sama hvað ég hef reint en án árangurs. Það er ekki hægt að hafa greinarskil. Það kemur bara allt í einni hrúgu.
Þetta er eins og var með bros kallana. Þeir komu bara í hrúgum svo í kaupbæti.
Bestu kveðjur til ykkar allra nær og fjær.
»
05.10.2011 14:03:05 / Haukur
Ég er heima hjá mér þessa daganna. Mikið er það nú gott. Það má auðvita ekki vera of lengi. Ég er að vinna í því að fá aðra vinnu.
Það er óhætt að segja að það sé í svo mörgu að snúast.
Ég hef ekki eitt miklum tíma heima síðan í enda mars.
Það var ekki spennandi veðrið sem heilsaði mér, svona allt af því að vera rigning í heila viku. Núna er búið að vera gott í 2 til 3 daga og spáin mjög góð. Það er mikil litadýrð hérna á haustin.
Ég ætla bara að hafa þetta stutt núna.
Vonandi verður tími til að koma með annað fljótlega.
Lifið heil.
»
22.09.2011 17:19:21 / Haukur
Þið hafið sjálfsagt oft ekki hugmynd um hvað ég er að fara með nafn á færslunum.
Ekki er ég að tala um að fellu í keilu. Ekki fatafellur heldur.
Eftir allar útilegur þá þarf maður að fella Tjaldið. Sem betur fer er ég nú ekki í tjaldi hérna í Belgíu. Ef svo væri þá væri ég nánast alltaf hund blautur.
Það var fyrir meira en viku síðan sem ég var að hugsa um að byrja að pakka. Það var kominn hugur í mig að komast heim. En raunveruleikinn var sá að það var ekki margt sem ég gat í raun pakkað.
Ég byrjaði í gær. Svo var haldið áfram þegar ég vaknaði í dag. Það er ein næturvakt eftir, ég ætla mér að fara fyrr heim svo að ég geti klára að setja vinnufötin og restina í tösku.
Ég er alveg búinn á því. Ég er nú ekki að kvarta en það hefur verið rosalega mikið að gera og unnið ansi margar næturvaktir síðustu 12 daganna.
Það eru alltaf blendnar tilfinningar þegar hver samningur er á enda. Núna er ég ekki kominn með vinnu, það er ekki svo gott. En hinsvegar er þetta orðið ágæt hérna. Er búinn að vera hérna síðan í byrjun apríl.
Ég verð víst að fara ð drífa mig af stað í vinnu.
Vona að þið hafið það sem allra best.
»
10.09.2011 19:55:39 / Haukur
Það var fimmtudagurinn 1 september. Ég vaknaði óþarflega snemma. Ef ég hefði vitað hvað var framundan hefði ég örugglega snúið mér á hina hliðina og haldið áfram að sofa. Þetta var ferðadagur. Chicago – Brussels. Þessa leið hef ég farið ófáum sinnum, eins sjálfsagt öllum er kunnugt núna.
Það var á tímabili sem ég hugsaði með mér áður en ég flaug að ég nenni þessu ekki. Ég hætti að hugsa svona sem betur fer. Reyni bara að gera sem best úr þessu. Það, flugið tók enda, og ég kom við í búðinni á flugvellinum og svo upp í næsta leigubíl. Svaf í einn og hálfan tíma. Náði að sofa á milli tvo og þrjá tíma í vélinni. Ég var mættur í vinnuna klukkan tvö. Get ekki sagt að ég væri hress, hef oft verið betur kvíldur áður en ég fer á fyrstu vaktina.
“Do you want to go to Greece?” var spurt þegar leið á vaktina. Ég svaraði þessu mjög hreinskilslega og sagðist ekkert langa að fara. En hinsvegar ef að hann hefði engan annan þá færi ég.
Það var úr að ég var í vél sem var að keyra út á flugbraut rétt fyrir 21 00. Það var ekki góð sætanýting í þessari vél. Það var ég og 3 manna áhöfn. Mikið er það þæginlegur ferðamáti.
Þegar við lentum á Kerkyra var lagt við hliðina á þessari biluðu vél. Ég tók mitt dótt og rölti yfir. Eftir að ég var búinn að tala við flugmennina þá bað ég um lítinn stiga. Af gamalli reynslu þá reiknaði ég ekki með því að fá hann. Þannig að ég hafðist fljótt handa. Stóð bara á verkfæra töskunni. Það gekk alveg upp. Það koma fljótlega að því að vélin sem ég kom með fór af stað með ferþegana sem voru búnir að eyða mörgum tímum á flugvellinum.
Það gekk allt eins og í sögu að laga vélina og gera tilheyrandi próf til að sanna að þetta var komið. Um 2 tímum eftir að ég kom var ég búinn að klára pappírsvinnuna og af stað héldum við aftur til Brussels. Núna var það bara ég og þeir tveir í klefanum.
Ég fór úr vinnunni 5 að laugardagsmorguninn. Eiginlega búinn að fá nóg af flugvélum og flugvöllum.
Það virtist vera rosalega fallegt þarna, það litla sem ég gat séð í mirkrinu. Flugstjórinn sagði mér að hann væri alveg til að vera í fríi þarna.
Það voru nokkrir erfiðir dagar sem fylgdu. Það var mjög erfitt að ná sér eftir þessu miklu vöku og ferðalögin.
Ég átti svo frí í gær, föstudag og einnig í dag.
Ég fór niður í miðbæ Brussels í gær. Hitti vinnufélaga sem býr þar.
Áður en við fórum í bíó þá fengum við okkur bita.
Þar sátum við úti ég ágætis veðri og fengu smá sýningu fyrir bíóið. Það var ein dama sem var eitthvað ósátt við kærastann og henti fullu glasi, veit ekki af hverju, beint frama í hann. Þannig að hann satt þarna hundblautur, glasið brotið á gólfinu og hún strunsaði í burtu.
Ég ætlaði mér að fara til Leuven í dag en var svolítið þreyttur og með smá höfuðverk.
Þar ætlaði ég að skoða mig aðeins um og horfa á leikinn, sem fór alls ekki nógu vel, í dag á írskum bar.
Ætlaði líka að hitta annan vinnufélaga.
Það er svona. Það fer ekki alltaf allt eins og maður ætlar sér.
Það er komið á hreint að ég kem ekki aftur hingað meira á þessu ári. Þessi samningur endar 22 sept og ég fer heim næsta dag.
6 mánuðir hérna, það er orðið gott.
»
30.08.2011 16:01:23 / Haukur
Það er nokkuð mikill tími sem fer fyrir framan tölvuna þessa daganna. Þó svo að ég sé heima núna þá heldur vinnan áfram. Ég er ekki að kvarta en svona er þetta bara. Ein vika heima fer í það að redda nokkrum hlutum, kvíla sig fyrir næstu átök og að leita af nýjum samning.
Ég druslaðist á fætur um 7 30 í morgun. Ætli ég hefi ekki sofið í rúma 9 tíma.
Ég ætlaði mér að vera kominn í ræktina núna þegar klukkan er farinn að nálgast 11. Er frekar latur þessa stundina en það dugar ekki mikið lengur. Fer eftir smá stund og sprikkla aðeins.
Ég get sagt ykkur það að ég er alveg ómulegur nema ég reini aðeins á mig reglulega, þarf að fá púlsinn upp í allavega hálftíma. Ég verð allt annar á eftir.
Ég tók eftir miklum mun á mér síðst þegar ég var í vinnunni. Þá hafði ég stundað ræktina reglulega í viku. Var miklu hressari, jákvæðari og kom fleiru í verk flest alla daga.
Í síðustu færslu talaði ég um smá ferðalag. Það var mjög gaman. Kom til lands sem ég hef aldrei komið til áður. Svo sá ég líka frænku mína sem ég hef ekki séð í 20 ár.
Ég flaug frá Brussles, kom aðeins við í Frankfurt og flaug svo til Gautaborgar þar sem var tekið á móti mér. Við keyrðum svo til Jönköbing. Það var ekkert smá sem var stjanað í kringum mig. Ég mætti þarna á laugardegi og fór aftur á þriðjudegi.
Það var mjög fallegt þarna. Það kom mér eiginlega mjög á óvart.
Við forum á söfn og skoðuðum okkur um á svæðinu í kring.
Góðar stundir.
»
12.08.2011 09:39:24 / Haukur
Góðan daginn, eða gott kvöld. Bara svona eftir því hvenær þú
lest þetta.
Það styttist í hádegi á föstudegi þegar ég settist niður og
ákvað að koma með nokkrar línur.
Það eru sjö daga dagvaktir að baki. Er að fara að vinna seinnipartinn í dag til
miðnættist. Það er bara ein auka kvöldvakt. Þá er það endir á fyrsta hálfleik á
þessu úthaldi. Næsti vinnudagur er á miðvikudagskvöldið.
Ég ákvað að ég hafði lítinn áhuga að vera hérna einn að
skrölta þangað til. Það er aðeins og dýrt að fljúga heim fyrir svona stuttan
tíma og einnig er það líka að fara til Íslands. Þannig að ég valdi stað sem ég
hef ekki komið á áður. Var eiginlega búinn að lofa upp í ermina á mér að koma
þegar svona tækifæri kæmi. Ég reikna með að þetta verði fín ferð. Fer eldsnemma
í fyrramálið og kem seinnipartinn á þriðjudag.
Ég hef verið að pakka smá fyrir þessa ferð fyrr í morgun. Þá
að það sé ekki farið neitt rosalega langt og lengi þá þarf maður alltaf að
pakka hlutum eins og meðölum, vegabréfi. Svo getur verið allra veðra von. Ég
þekki það frá því að vera búinn að koma á nokkra staði.
Another one bites the
dust.
Ég hef sagt það oft áður að ég hef gaman að fylgjast með
nýrri tækni og nota mér suma af þessum hlutum. Ég get nefnt að við keyptum
okkur I Phone fyrr í sumar, fynnst það alveg frábært tæki. Það kemur mér að
góðum notum þar sem ég er svo mikið á ferðinni þá er gott að geta athugað
tölvupóstinn og svona ýmislegt sem er hægt að nýta sér þetta. Og svo er ég
alltaf að leita að næsta samning.
Það getur auðvita verið of mikið með þessi síma. Sumir eru
alltaf límdir við skjáinn. Ganga yfir götur að senda SMS, vita kannski varla af
því að einhver keyrði sig niður.
Hinsvegar eru fleiri hliðar á þessu máli. Það er önnur búð
að fara á hausinn, eða önnur keðja öllu heldur. Það er ein af okkar uppáhaldsbúðum.
Það er bókabúð sem heitir Borders.
Það geta verið margar ástæður fyrir því. Ég held að það sé líka
fyrir að fólk notar spjaldtölvur. Það endar með því að við þurfum varla að fara
út úr húsi lengur sem er ekki skemmtileg þróun. Það er auðvita gott að geta nýtt
sér svona hluti með. Eins og að panta á netinu og fá hlutina senda heim. Ég
hafði ekki svo mikinn tíma fyrir síðustu jól að ég fór á netið og pantaði ansi
margar jólagjafir og svo fékk þær sendar heim.
Það væri nú gaman að heyra frá ykkur. Vita hvað þið hafið
verið að brasa í sumar. Var farið í einhverja ferð?
Það styttist víst í það að ég þurfi að fara að vinna. Best
að drífa sig.
Hafði það sem allra best.
»
04.08.2011 16:13:23 / Haukur
Það er meira hvað
hefur verið mikið að gera, greinlega of mikið til að blogga. Annars get ég
kannski ekki sagt að það hafi verið mikið að gera alla síðustu viku.
Ég var kominn í
þann pakka að geta slappað aðeins af.
Þrátt fyrir að
það hafi verið frábært á Cape Cod þá var þetta stundum pínulíðtið strembið. En
vill segja það enn og aftur að þetta var hreint frábær ferð. Það var svo gaman
að geta haft svo mikið af fólki á sama stað og tíma. Það gerist ekki nógu oft.
Og svo tókst
veilsan mjög vel, heppinn með veður. Hefði ekki verið gaman að hafa giftingu
utan dyra í rigningu.
Ég er kominn á
kunnulegan stað. Það er hitt lífið.
Þetta er svo
tvennt ólíkt. Að vera heima hjá mér eða hérna í Brussels, að svo mörgu leiti.
Ég kom hingað í
morgun, byrja ekki að vinna fyrr en 6 í fyrramálið, föstudag. Það er fyrsta
dagvakt sem ég hef unnið allt árið, verð í 7 daga á þeirri vakt.
Ég ætla að láta
þetta duga í bili og ætla mér að vera duglegri að koma með nokkrar línur aðeins
oftar.
Bestu kveðjur.
»
Síður:
1 2 3 ...
23